fimmtudagur, júlí 05, 2007

Góðan daginn góðir hálsar og Gísli minn! Auðvitað er ég ekki alveg hætt. Bara í fríinu góða. Fór t.d. vestur í hina árlegu dásamlegu saltfiskveislu um helgina og söng með bandi Villa Valla latínó prógrammið okkar. Það var ógisslega gaman audda. Veislan var í fyrsta sinn í Edinborgarhúsinu sem er ekkert smáflott. Og veðrið var dásemd og dýrð handa mér. En mar nennir ekki að blogga of mikið í sumartímanum. Það er alltaf þetta sama í fríinu. Verið að taka til og raða nótum, amk í huganum. Svo er sungið og leikið jafnvel fyrir dansi, tvær farir í dag. Rabarbarasultan gerð í gær með límonu, eða var það í fyrradag. Bara verið að hanga eða ekki hanga. Þvo og taka til, þrífa þreif þrifum þrifið...

a presto

Giovanna

1 ummæli:

Gigglito sagði...

Jibbí! Gaman gaman loksins líf!
Það er svo margt búið að gerast hjá þér síðan ég sá þig síðast..held ég.
Er að koma heim eftir tæpa viku. Geturðu ekki reddað mér nokkrum förum, ha? :) Vona að ég fái að sjá framan í þig.