föstudagur, september 23, 2005

Góðan daginn góðir hálsar,


Minn háls rétt að ná sér eftir kvefpest háustins. Haustið skellur harkalega á að þessu sinni, en maður tekur því bara. Já,já. Lætur sig hafa það bara. Skreppur upp í dalinn sinn og áður en maður veit er litadýrðin búin að heilla mann upp úr gönguskónum og svo er bara ósköp gott að horfa á Esjuna skarta snjóhvítu.
Börnin búa sig til brottfarar af via Rossa og uppá via Riso numero 10. Við Gummi böðum okkur í fermetrum. Ótrúlegt hvað þessir mánuðir fljúga frá manni. En uppvaskið bíður. Það hleypur ekki frá manni.

E la vita cosí, sempre una grande surpresa

a presto

Giovanna