miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Jæja og aðventan byrjuð með Fögur er foldin og yfirröddum og hreint útsagt yndisleg stund í Bústaðakirkju á sunnudaginn. Krakkarnir mínir voru gjörsamlega að standa sig. Jibbíkóla Ég byrjuð að skreyta húsið, og baka rúgbrauð, sem heppaðist vel og bjó til skrýtna kæfu sem var skemmtileg tilraun og heppaðist svona næstum því held ég.Amk. mýkri en þessi sem ég gerði í fyrra eða var það árið áður? Æðislega góðar súrsuðu rófurnar maður. Sisisi. Fór á Jómfrúnna í dag og hitti gamlar og góðar vinkonur fer aftur á morgun og lokaæfingin komin í dag. Nei, smáaukadæmi á morgun. En allt að koma og bara gaman þegar þetta er að verða til. Uppselt á fyrri tónleikana. Sumsé gott...

a presto


Giovanna.