fimmtudagur, janúar 13, 2005

Jæja hálsar góðir, á maður kannski að fara að taka niður jólatréð? Það var óskaplega fallegt þetta Léttsveitarjólatré en farið að láta á sjá. Stefni að því að taka það niður fyrir helgi. Svo er þetta með Laugarnar og línurnar. Að ná því líka fyrir helgi væri kraftaverk.

a presto

Giovanna

mánudagur, janúar 10, 2005

Til hammara með ammara elsku Halli minn frændi góður...
Góðu hálsar,

þvílíkur morgunn! Ætlaði sko svo sannarlega að fara í Laugar, líkamsrækt og hefja nýja lífið sem ég lofaði sjálfri mér í gærkveldi, en skreið óvart uppí rúm aftur þegar ég var búin að keyra litla prinsinn í skólann og tók moggann og fréttablaðið með mér. Klukkan hálf ellefu þegar ég var margsinnis búin að segja við sjálfa mig. Hana! Af stað. Drífa sig. Þá loksins tókst mér að komast á lappir og bara uppí Dal. Bara vel. Svo er bara kennslan byrjuð. U la Madonna, og ég sem á eftir að skipuleggja líf mitt.

A presto

Giovanna