mánudagur, janúar 10, 2005

Góðu hálsar,

þvílíkur morgunn! Ætlaði sko svo sannarlega að fara í Laugar, líkamsrækt og hefja nýja lífið sem ég lofaði sjálfri mér í gærkveldi, en skreið óvart uppí rúm aftur þegar ég var búin að keyra litla prinsinn í skólann og tók moggann og fréttablaðið með mér. Klukkan hálf ellefu þegar ég var margsinnis búin að segja við sjálfa mig. Hana! Af stað. Drífa sig. Þá loksins tókst mér að komast á lappir og bara uppí Dal. Bara vel. Svo er bara kennslan byrjuð. U la Madonna, og ég sem á eftir að skipuleggja líf mitt.

A presto

Giovanna

Engin ummæli: