mánudagur, mars 07, 2005

kæru hálsar, ég er búin að vera í heila viku á Ítalíu á skíðum með maestro Franco sem er flottur skíðakennari ættaður þarna frá suður Týról, og það ótrúlega er að ég skemmti mér konunglega og er kom óbrotin á leiðarenda og endaði með að renna mér niður hæstu brekkur. Dreymir ennþá hvítar brekkurnar og mig í lyftunum með útsýni yfir til Austurríkis og er í sjöunda himni. Og og og og maturinn og vínið og fólkið og hláturinn og það allra besta að gleyma öllum skyldum og vera í fríi. Ég mæli með Valgardena, maestro Franco í Scoula di Ski og fimm rétta kvöldverði á hverju einasta kvöldi á hótel Savoy.

a presto

Giovanna