fimmtudagur, janúar 20, 2005

Góðir hálsar, haldið niðrí ykkur andanum. Ég er búin að kaupa mér einkaþjálfara!

Meira seinna

a presto

Giovanna

miðvikudagur, janúar 19, 2005

Það er þetta með líkamsræktina og Laugarnar kæru hálsar og hálskot... er þetta ekki fyrir einhverjar aðrar týpur en mig. Ég er nú eiginlega meira svona heimatýpa. Já svona týpa sem fer þá frekar að baka brauð heldur en að stinga sér í einhverja líkamsrækt. Það er náttúrlega ákveðin hreyfing að baka. Og svona. Æi já.. Annars tíminn flýgur og ekkert spes að gerast. Nema þetta sama. Alltaf verið að syngja og svona.

a presto

Giovanna

sunnudagur, janúar 16, 2005

Góðir hálsar,

Dio mio, enn ein helgin flogin. Giggin búin og jólatréð farið. Seríurnar fá að hanga aðeins lengur amk. framyfir öll barnaafmælin sem framundan eru. Bara vel og vonandi eru stóru börnin komin til Noregs núna. Stóra spurningin er hvort maður nái að setja í uppþvottavélina fyrir nóttina.

a presto

Giovanna